Fyrsta koma Norwegian Prima til Reykjavíkur

Norwegian Prima Nýjasta skip skipafélagsins Norwegian Cruise Line lagðist að bryggju í Reykjavík að morgni 25. ágúst 2022.

Frá því að áætlaðar komur skemmtiferðaskipa til Faxaflóahfana þetta sumarið var byrt, var stefnt að því að skipið kæmi að bryggju um kl. 07. En þegar skipið lagði af stað frá Southampton áleiðis til Reykjavíkur breyttist komutíminn til kl. 04. Í seinnihluta águstmánaðar er myrkur á þessum tíma. gerði það myndatökuna mjög krefjandi og erfiða.

Bestu þakkir færi ég Faaxaflóahöfnum fyrir að hafa gefið mér leyfi fyrir myndatöku ynnan athafnasvæðisins á bryggjunni. Án þeirra hefði myndatakan ekki orðið svona stór, skemmtileg og eftirminnileg.