Skilmálar
1. Greiðsla
1.1 – Hægt er að greiða með greiðslukorti frá Visa, Mastercard, American Express. Þegar þú verslar skráir þú inn númer og gildistíma greiðslukortsins.
2. Vöruafhending
2.1 – Innrammaðar myndir eru pantaðar að utan, frá Bretlandi þar sem prentun, innrömmun og annar frágangur frem fram. Myndir eru prentaðar á allt að tveggja vikna fresti eða eftir þörfum.
2.2 – Afhending vöru fer fram með þeim hætti sem valinn er við frágang pöntunar, þ.e.a.s. sent á pósthús/póstbox eða keyrt heim að dyrum.
2.3 – Pantanir sem aðeins innihalda dagatöl eru afgreiddar og komið í Póst innan tveggja virkra daga eftir að greiðsla hefur borist
2.4 – Vara telst afhent Þegar hún hefur verið póstlögð eða afhent við heimkeyrslu.
3. Vöruskipti eða skil á vöru
3.1 – Hægt er að skipta eða skila vöru innan 30 daga frá afhendingu.
3.2 – Vara fæst endurgreidd að fullu ef innsigli á umbúðum er órofið.
3.3 – Ef innsigli er rofið og hætt er við kaupin fæst 70% af kaupverði endurgreitt.
3.4 – Ef vara er skemmd fæst varan gridd að fullu með sönnun á skemmd.
4. Gæðamál og Ábyrgð
4.1 – Reynt er eftir fremsta megni að tryggja að gæði séu upp á 10 í öllum atriðum.
4.2 – Innrammaðar myndir sem eru skoðaðar við komu til landsins og þeim endurpakkað til þess að tryggja að varan sé óskemmd.
5. Persónuupplýsingar
5.1 – Allar persónulegar upplýsingar um kaupanda vegna notkunar á vefsvæði vms.photos verður farið með í samræmi við lög og reglur um meðferð persónulegra upplýsinga eins og þær eru á hverjum tíma. vms.photos hefur hins vegar leyfi til að nýta eftirfarandi upplýsingar til markaðsrannsókna sem væntanlega leiða til betri þjónustu við kaupendur. Jafnframt áskilur seljandi sér rétt til að nýta þessar upplýsingar með samstarfsaðilum sínum í þeim tilgangi að bæta og til að bjóða fjölbreyttari þjónustu. Upplýsingar verða aftur á móti ekki látnar þriðja aðila í té..