Ég heiti Viktor Már Sigurðsson og er 22 ára. Útskrifaðist af sérsviði ljósmyndunar í Tækniskólanum vorið 2022.

Í maí 2018 keypti ég mína fyrstu DSLR myndavél sem var af gerðinni Canon EOS 1300D og linsu af gerðinni Tamron 70-300 f4-f5,6. Eftir útskrift úr grunnskóla vorið 2019 lá leiðin í grunnnám upplýsinga- og fjölmiðlagreina en því námi lauk ég á tveimur árum og um haustið 2021 byrjaði ég á sérsviðinu í ljósmyndun.

Þegar ég byrjaði að taka myndir var stefnan sett á fuglamyndatöku, Í dag sérhæfi ég mig í skipaljósmyndun. Samhliða því sinni ég einnig náttúru ljósmyndun og tek að mér allskins myndatökur hvort sem það sé portrett myndir, myndatökur af viðburðum eða auglýsingaljósmyndun.