Hið nýja varðskip Landhelgisgæslunnar, Freyja, rennir inn Siglufjörð.

Varðskipið Lagðist að bryggju í fyrsta skipti í sinnu nýju heimahöfn á Siglufirði eftir að hafa verið keypt til landsins, til þess að leysa Varðskipið Tý af hólmi við eftirlit og önnur verkefni á Íslandsmiðum. Lagðist skipið að bryggju um miðjan dag þann 6. nóvember 2021, í rigningu og leiðinda veðri eftir fjögurra daga siglingu frá Hollandi, þar sem skipið var standsett fyrir heimkomuna.